Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1410465788.8

    Saga Lýðveldis
    SMFÉ1ÍE03
    6
    samfélagsfræði
    Íslenska lýðveldið
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað er verður um sögu íslenska lýðveldisins frá stofnun þess fram að deginum í dag.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Að Ísland er sjálfstætt lýðveldi
    • Sögu Íslands
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Að segja hvenær lýðveldið var stofnað
    • Að þekkja fánalitina og fyrir hvað litirnir standa
    • Að þekkja skjaldarmerkið
    • Að geta nefnt þjóðhátíðardag og af hverju sá dagur var valinn
    • Að vita hverjir hafa verið forsetar
    • Að vita hver er núverandi forseti og hvar hann býr
    • Að leita sér upplýsinga um Alþingi, hvar það er og hvað það er
    • Að leita sér upplýsinga um þingmenn, stjórn, stjórnarandstöðu og ráðherra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka þátt í umræðum um lýðveldið Ísland
    • Beita þekkingu sinni í daglegu lífi í umræðum um lýðveldið Ísland
    Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.