Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1412776869.85

    Tónlist með áherslu á samtímatónskáld
    LSTR1SA03
    16
    listir
    Samtímatónskáld
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um að sígilda tónlist og ýmis tónskáld sem hafa haft áhrif á samtímasöguna eða frá um 1930 til dagsins í dag. Einnig verður hlustað á ýmis tóndæmi sem tengjast efninu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hvað felst í hugtakinu sígild tónlist
    • Fjölbreytileika hljóðfæra í sígildri tónlist
    • Uppbyggingu mismunandi hljómsveita
    • Nokkrum sígildum tónskáldum í samtímanum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Að þekkja ýmis hljóðfæri
    • Að nefna nokkur sígild samtímatónskáld
    • Að nefna nokkur sígild samtímaverk og lög
    • Að tengja tónverk og/eða tónlist við höfund
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Greina áhugasvið sín varðandi tónlist
    • Geta tjáð öðrum áhugasvið sín varðandi tónlist
    • Geta tekið þátt í umræðum um samtímatónlist
    • Geta hlustað fordómalaust á ýmis tóndæmi
    • Geta myndað sér skoðun á ýmsum tóndæmum og tjáð sig um hana
    Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.