Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1413885379.57

    Sjálfstætt verkefni um íþróttir og heilsurækt
    HEIL1HR02
    7
    heilsa, lífsstíll
    Heilsurækt
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum vinnur nemandi sjálfstætt verkefni sem hann velur sjálfur í samráði við íþróttakennara. Verkefnið fjallar um íþróttir og heilsurækt í víðum skilningi. Nemandi aflar heimilda og upplýsinga eða gerir könnun sem tengist viðfangsefninu og skilar lokaritgerð. Nemandinn skal einnig halda fyrirlestur uppúr verkefni sínu á ákveðnum tímapunkti í samráði við kennara.
    Nemandinn hafi tekið 4 einingar í íþróttum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • því efni sem hann fjallar um í sjálfstæðu verkefni sínu
    • uppbyggingu og aðferðum við vinnu á ritgerð eða verkefni
    • vísan í heimildir og frágang heimilda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna við öflun og úrvinnslu upplýsinga er tengjast íþróttum og heilsurækt
    • greina heimildir og vinna með mismunandi tegundir heimilda
    • tengja saman ýmis konar efni sem tengist íþróttum og heilsurækt
    • skrifa skiljanlegan og lipran texta þar sem faglegum meginatriðum eru gerð góð skil
    • gera heimildaskrá og vísa í texta
    • setja upp texta ásamt myndum, töflum eða skýringum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna frumkvæði við að vinna að verkefni tengdu íþróttum og heilsurækt
    • greina aðalatriði úr heimildum og skrifa um þau
    • útskýra umfjöllunarefni á skiljanlegan og skipulegan hátt
    Ritgerðin er metin út frá lengd, frágangi, innihaldi, uppbyggingu, efnistökum, málfari og heimildum. Nemandinn skal fá samþykki íþróttakennara um efni og efnistök áður en verkefnið hefst.