Markmið áfangans er að nemendur nái tökum á undirstöðuatriðum enskrar málfræði, geti skilið daglegt mál og tjáð sig um einfalda hluti munnlega og skriflega. Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur lesi fjölbreytta texta sem tengjast þeirra áhugasviði eða kunnuglegu efni. Nemendur byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða, læra að nýta sér uppflettirit og tjá hugsun sína bæði í ræðu og riti á skipulegan hátt. Lögð er áhersla á að nemendur tali skýrt mál og noti það á réttan og viðeigandi hátt. Áhersla verður á að kynna nemendur fyrir hinum margvíslegu menningarheimum enskumælandi landa um heim allan með ýmis konar verkefnum.
Enska grunnstoðir
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hagnýtum orðaforða
menningu í löndum þar sem enska er töluð
mismun á rituðu og töluðu máli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa texta á eigin áhugasviði eða um kunnugleg efni
taka þátt í almennum samræðum á ensku
skilja talað mál um kunnugleg efni
skrifa samfelldan texta um kunnuglegt efni
beita grundvallarreglum í rituðu og töluðu máli
nýta sér uppflettirit, s.s. orðabækur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta nýtt fjölmiðla sér til gagns
geta aflað sér upplýsinga og hagnýtt sér þær í námi
geta skrifað texta með viðeigandi málsniði
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.