Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1415789567.05

    Stærðfræði, grunnstoðir
    STÆR1HA05(B)
    46
    stærðfræði
    hagnýt stærðfræði daglegs lífs
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    SS
    Í áfanganum tileinka nemendur sér helstu undirstöðuþætti almennrar stærðfræði og öðlast um leið sjálfstraust og hugrekki til að glíma við margvísleg reikningsdæmi. Helstu þættir hagnýtrar stærðfræði eru í brennidepli, s.s. samlagning, frádráttur, margföldun og deiling, brot, verðútreikningar, prósentur o.fl.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Einföldum aðgerðum í stærðfræði s.s. samlagningu, margföldun, deilingu, hlutföllum og einföldum prósentureikningi
    • Framsetningu upplýsinga á myndrænan og lýsandi hátt
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skrá lausnir sínar snyrtilega og skipulega
    • Nota vasareikni
    • Reikna í huganum
    • Lesa upplýsingar út úr einföldum myndum og gröfum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Nýta stærðfræði í daglegu lífi
    • Geta metið hvaða aðgerðir í stærðfræði henta við ólík úrlausnarefni í daglegu lífi
    • Geti nýtt kunnáttu sína til að skilja og meta upplýsingar sem settar eru fram á myndrænan hátt
    Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.