Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417442026.79

    Spænska B
    SPÆN1SB05
    15
    spænska
    Spænska framhaldsáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Byggt er á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa aflað sér. Nemendur notast við les- og vinnubækur, gera hlustunar- og munnlegar æfingar. Orðaforði eykst. Nemendur vinna ýmis verkefni (munnleg eða skrifleg) með og án hjálpar upplýsingatækni. Verkefnin eru ýmist einstaklings- eða hópverkefni. Lögð er áhersla á frumkvæði nemenda og að þeir fylgist með eigin stöðu í náminu og framförum sínum. Áfanginn er á hæfniþrepi A1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
    SPÆN1SA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • orðaforða sem tengist efni áfangans
    • • völdum atriðum í menningu Spánar og Rómönsku Ameríku
    • • völdum grundvallarþáttum í uppbyggingu spænska málkerfisins
    • • textum sem fjalla um efni sem tengist námsefni áfangans eða undanfara hans
    • • ýmsum leiðbeiningum í talmáli sem tengjast námsefni áfangans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • skilja talað mál um efni sem tengist námsefni áfangans þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • • lesa texta sem tengist námsefni áfangans
    • • taka þátt í einföldum samskiptum og tjá sig um efni sem nemandinn þekkir
    • • segja frá efni sem tengist námsefni áfangans
    • • skrifa einfaldan texta sem tengist námsefni áfangans
    • • nýta sér upplýsingatækni eða önnur hjálpargögn við tungumálanám sitt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • lesa texta og greinar, ef fjallað er um efni sem er nemandanum kunnuglegt
    • • geta gefið helstu upplýsingar um sjálfa/n sig og aðra
    • • svara spurningum ef spurt er um málefni sem tengjast námsefni áfangans
    • • skrifa um málefni sem tengjast námsefni áfangans
    • • ná helstu upplýsingum úr töluðu máli, ef talað er um málefni sem honum eru kunnugleg
    • • meta eigið vinnuframlag og annarra
    Í lok áfangans er próf sem gildir á móti ýmisskonar vinnu, verkefnum (skriflegum, munnlegum og hlustun) og ástundun nemandans á önninni.