Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417448158.03

    Orðaforði og málnotkun
    ENSK2OM05
    28
    enska
    Orðaforði, málfræði, málnotkun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur lesa almenna texta um margvísleg efni og orð og orðatiltæki eru skýrð á ensku og/eða þýdd á íslensku. Einnig eru kynnt hugtök sem tengjast verslun og viðskiptum. Verkefni eru unnin til að þjálfa nemendur í notkun á nýjum orðaforða sem kemur fyrir í lestextum. Undirstöðuatriði enskrar málfræði, sérstaklega þau atriði sem reynast íslenskum nemendum erfið, eru rifjuð upp. Ennfremur læra nemendur að skrifa vel skipulagðar efnisgreinar og ritgerðir auk þess að flytja erindi. Ein stutt skáldsaga og nokkrar smásögur eru hraðlesnar og verkefni unnin úr því efni. Ætlast er til þess að nemendur hafi öðlast hæfni B2 samkvæmt Evrópsku tungumálamöppunni.
    Grunnskólapróf
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • • hugtökum er tengjast verslun og viðskiptum
    • • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað
    • • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • lesa margs konar texta og beita þeim lestraraðferðum sem eiga við
    • • skilja mál sem talað er við mismunandi aðstæður
    • • skrifa margs konar texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
    • • taka virkan þátt í samræðum og segja frá á skýran hátt með því að beita viðeigandi orðaforða og málvenjum
    • • nýta sér hjálpargögn, svo sem orðabækur, leiðréttingarforrit, tölvu- og upplýsingatækni eins og kostur er
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni
    • • tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt
    • • lesa á milli línanna, átta sig á dýpri merkingu í texta
    • • eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum
    • • tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og beita tungumálinu af tiltölulega mikilli nákvæmni við margs konar aðstæður
    • • skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
    • • skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig, til dæmis að skrifa vel uppbyggða ritgerð
    • • nýta upplýsingatækni til upplýsingaöflunar og þjálfunar í notkun á tungumálinu
    • • vinna með öðrum og stunda samvinnunám
    Námsmat er byggt á vinnu nemenda yfir önnina, skyndiprófum og öðrum verkefnum, ásamt lokaprófi.