Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417779333.78

    Diffrun og fallafræði
    STÆR3DF05
    27
    stærðfræði
    deildun, föll, markgildi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Fallahugtakinu eru gerð góð skil svo og ýmsum aðgerðum sem beitt er á föll. Meðal annars eru vísisföll og lograföll kynnt hér. Markgildishugtakið þ.m.t. einhliða markgildi og óeiginleg markgildi er skilgreint. Einnig hallatala við feril falls, diffurkvóti og diffurreglur. Endað er á fallagreiningu en í henni felst að finna staðbundin útgildi, einhallabil, sveigju ferils o.m.fl. Kennslan fer jöfnum höndum fram með fyrirlestrum kennara og vinnu nemenda. Nemendur vinna ýmist saman eða einir sér. Gerðar eru kröfur um að nemendur vinni verkefni heima og standi skil á þeim annað hvort í kennslustund eða með því að skila verkefnum skriflega. Kennari fer síðan yfir heimaverkefni og nemendur fá endurgjöf.
    STÆR2VH05 - (STÆ303)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • veldis-, rótar- og algildisföllum ásamt ræðum föllum, vísisföllum, 10-logra og náttúrlegum logra
    • • ýmsum hugtökum og reiknireglum tengdum föllum
    • • markgildi, samfelldni og aðfellum falla
    • • snertli, diffurkvóta og diffurreglum
    • • afleiðum veldisfalla, hornafalla, algildisfallsins, vísisfalla og náttúrlegs lografalls
    • • staðbundnum útgildum og beygjuskilum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • kanna feril falla: finna skilgreiningar og myndmengi, diffra föll og finna útgildi og beygjuskil, finna aðfellur og rissa upp feril fallsins
    • • skeyta saman föllum og finna andhverfur falla
    • • leysa jöfnur með vísis- og lograföllum
    • • nota leiða út afleiður falla út fráskilgreiningu á afleiðu
    • • reikna einföld markgildi og ganga úr skugga um hvort fall af einfaldri gerð sé samfellt og/eða diffranlegt
    • • reikna einföld markgildi og ganga úr skugga um hvort fall af einfaldri gerð sé samfellt og/eða diffranlegt
    • • nota skilgreiningar til að sýna fram á ákveðna eiginleika falla
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • geta skráð lausnir sínar skipulega og rökstutt þær
    • • geta rætt hugmyndir sínar um námsefnið
    • • geta skilgreint hugtök námsefnisins með nákvæmum hætti
    • • fylgja og skilja röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
    • • rekja sannanir í námsefninu
    • • greina hvenær röksemdafærsla teljist fullnægjandi
    • • nota skilgreiningar í röksemdafærslum
    • • vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
    • • klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa og túlka lausnina
    Byggir á lokaprófi, vinnu í kennslustundum, heimanámi, verkefnum og skyndiprófum.