Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417790144.54

    Bókfærsla og rekstrarhagfræði
    BÓKF1BR05
    1
    bókfærsla
    Bókfærsla og rekstrarhagfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Bókfærsluhluti áfangans byggist á verkefnavinnu nemenda, dæmatímum og fyrirlestrum. Til að byrja með vinna nemendur verkefnin í dagbók til að ná undirstöðuatriðum bókfærslunnar og temja sér rétt vinnubrögð. Þegar náðst hefur skilningur á færslu bókhalds eru verkefnin unnin í Excel. Kennslustundirnar eru að mestu verklegar, þ.e. að nemendur vinna sjálfstætt og í hópum. Lögð er áhersla á að nemendur skilji hugsunina á bak við tvíhliða bókhald, læri að færa inn dagbókarfærslur viðkomandi tímabils og geti svo gert upp viðkomandi tímabil. Rekstrarhagfræðihluti áfangans byggist einnig mikið á verkefnavinnu en líka fyrirlestrum og umræðum. Lögð er áhersla á útreikning og túlkun efnisins. Í áfanganum eru mismunandi kostnaðarhugtök kynnt, útreikingar á núllpunkti, túlkun á kennitölum og gerð einfaldra fjárhagsáætlana.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • grunnhugtökum bókfærslu
    • • helstu kostnaðar- og tekju hugtökum rekstrarhagfræðinnar
    • • einfaldri áætlanagerð
    • • hvernig tvíhliða bókhald virkar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • setja fram tvíhliða bókhald
    • • færa einfalt uppgjör
    • • setja fram einfaldan efnahags- og rekstrarreikning
    • • reikna út kostnað, tekur, afkomu og núllpunkt
    • • reikna framlegð
    • • gera einfaldar rekstrar- og greiðsluáætlanir auk áætlaðan efnahagsreikning
    • • reikna út algengar kennitölur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • gera upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil
    • • stilla upp prófjöfnuði
    • • gera einfaldar lokafærslur fyrir uppgjör
    • • útfæra einfaldar launafærslur
    • • búa yfir skilningi á mismunandi kostnaði fyrirtækja
    • • skilja samhengi í rekstri fyrirtækja og mikilvægi áætlanagerðar
    • • skilja og túlka tölulegar upplýsingar sem varða rekstur fyrirtækja
    • • túlka niðurstöður kennitöluútreikninga
    • • gera sér grein fyrir verðmætasköpun fyrirtækja
    Námsmat áfangansi byggir á skilaverkefnum nemenda, skyndiprófum og lokaprófi.