Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1418039966.09

    Vélritun
    VÉLR1FI02
    1
    Vélritun
    blindskrift, fingrasetning, hnappaborð, vélritun
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Áfanginn er ætlaður byrjendum í vélritun og inniheldur hann fjórar lotur, eða 22 verkefni. Nemendur taka stöðupróf í byrjun áfangans og geta lokið áfanganum ef þeir ná viðunandi einkunn. Í áfanganum er farið í hnappaborðið, byrjað er á léttum fingraæfingum og æfingar þyngdar smátt og smátt. Í áfanganum læra nemendur rétta fingrasetningu, nýta blindskrift og vélrita með jöfnum áslætti. Stuðlað er að því að nemendur tileinki sér réttar vinnustellingar og vinnuferli og er leiðbeiningum skotið inn með reglulegu millibili í námsferlinu. Þar er leiðbeint um réttar vinnustellingar og hléæfingar sem gott er að gera til að koma í veg fyrir þreytu, bakverki og aðra óæskilega fylgikvilla við tölvuvinnu.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • staðsetningu heimalykla á hnappaborðinu
    • • staðsetningu lykla á hnappaborði út frá heimalyklunum
    • • réttri fingrasetningu
    • • réttum vinnustellingum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • nota rétta fingrasetningu og blindskrift
    • • að beita líkamanum rétt við innslátt
    • • vélrita á ákveðnum hraða við innslátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • vélrita með jöfnum áslætti
    • • nýta rétta fingrasetningu og blindskrift
    • • ná góðum hraða í innslætti
    • • beita líkamsstöðu við hæfi
    Námsmat í áfanganum tekur mið af ástundun nemenda yfir önnina, verkefnavinnu og skilum, æfingum og verklegu prófi í lokin.