Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1418309325.77

    Efnafræði, efnajafnvægi
    EFNA3EJ05
    8
    efnafræði
    Efnajafnvægi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Hefðbundin kennsla fer fram í kennslutímum, þar sem hvatt er til umræðu og fyrirspurna eftir því sem tilefni gefast til. Mikil áhersla er lögð á dæmareikning. Auk þessa eru verklegar æfingar í raungreinastofu. Í raungreinastofu er tölvubúnaður sem gerir nemendum kleift að hefja skýrslugerð og útreikninga jafnframt tilrauninni. Lögð er áhersla á að nemendur noti tölvuforrit við úrvinnslu niðurstaðna. Nemendum er ætlað að tileinka sér og öðlast skilning á efni kennslutexta og viðbótarefni sem fram kemur í kennslustundum. Einnig eiga þeir að ná tökum á skýrslugerðarformi og tölfræðilegri úrvinnslu gagna í verklegum tilraunum.
    EFNA2LT05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • hraða og gangi efnahvarfa
    • • efnajafnvægi, jafnvægislögmálinu og jafnvægisföstum
    • • söltum í vatnslausn, leysni og leysnimargfeldi
    • • jafnvægi í sýru-/basalaunum, sjálfsjónun vatns, jafnvægisfastanum Kv, pH
    • • dúalausnum, títrun, jafngildispunkti, komplexjónum
    • • óreiðu, öðru og þriðja lögmáli varmafræðinnar, sjálfgengum efnahvörfum, Gibbs frjálsorku
    • • stillingu oxunar-afoxunarjafna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • finna hraðafasta út frá mælingum
    • • finna helmingunartíma hvarfa
    • • álykta um hraðatakmarkandi skref í hvarfgangi út frá hraðalögmáli
    • • ákvarða jafnvægisstöðu hvarfs
    • • finna styrk efna við jafnvægi
    • • skilja tengsl hraðafasta og jafnvægisfasta
    • • geta notað lögmál le Châteliers
    • • finna sýrustig (pH) lausna
    • • geta teiknað og túlkað títrunarferil
    • • velja litvísi fyrir títrun
    • • beita nálgunum í reikningum
    • • reikna óreiðu efnahvarfa og ákvarða hvort efnahvörf eru sjálfgeng
    • • geta reiknað frjálsorku
    • • framkvæma verklegar æfingar í tilraunastofu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • beita skipulegum aðferðum við úrlausn dæma
    • • túlka orðadæmi og klæða þau í stærðfræðilegan búning
    • • setja upp jöfnur og leysa þær með viðeigandi mælieiningum
    • • leggja mat á úrlausnir sínar og álykta um hvort þær standist
    • • beita gagnrýninni hugsun og sýna innsæi og útsjónarsemi við lausnir verkefna
    • • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær í rituðu máli
    • • standast þær kröfur sem gerðar eru til áframhaldandi náms í efnafræði á háskólastigi
    • • meta mikilvægi efnafræði í raunvísindum
    • • geta rökrætt og tekið afstöðu til álitamála í samfélaginu þar sem efnafræði kemur við sögu, svo sem mengunarmála, umhverfismála, heilbrigðismála o.s.frv.
    Lokapróf, annarpróf, verklegar æfingar, heimadæmi.