Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1420818302.75

    Málvísindi
    ÍSLE3MV05(SB)
    35
    íslenska
    málvísindi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    SB
    Í áfanganum verður fjallað um málvísindi í tengslum við viðfangsefni félagsvísindabrautar. Nemendur kynnast máltöku barna sem er hluti af sálfræðinámi þeirra, hljóðfræði sem færir þá inn í framburðarathuganir , þróun móðurmálsins eftir tímabilum sem tengir þá við Íslandssöguna, mállýskur (félagslegar, landshlutabundnar eða aldurstengdar) sem gefur þeim skilning á mismunandi félagslegum aðstæðum manna og tjáskipti til að skilja og skynja þær margvíslegu aðferðir sem menn hafa til að koma ætlun sinni til skila.
    A.m.k. 10 einingar í íslensku á 3. þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • málvísindum á félagsfræðilegum grunni
    • máltöku barna
    • málbreytingum frá einum tíma til annars
    • hljóðfræði og hljóðritun
    • mállýskum (félagslegum, landshlutabundnum og aldurstengdum)
    • tjáskiptum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja almenn tjáskipti með og án orða
    • sjá aldursmun texta eftir málfari
    • sjá mun á aldri, búsetu og stétt manna eftir málfari
    • hljóðrita algeng orð og lesa úr hljóðritun
    • meta málstig barna
    • greina málvísindi á félagsfræðilegum grunni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita málvísindum á félagsfræðilegum grunni
    • fylgjast með börnum og málþroska þeirra og gera grein fyrir niðurstöðum athugana sinna skriflega og í myndrænu og töluðu formi
    • nota kunnáttu sína í hljóðfræði og hljóðritun til að lýsa framburði orða og þekkja mun á mállýskum
    • gera sér grein fyrir aldri, búsetu eða stétt manna eftir málfarseinkennum þeirra og geta tekið þátt í rökræðum þar að lútandi
    • gera sér grein fyrir aldri texta frá mismunandi tímabilum og fjalla um breytingar sem orðið hafa
    • gera sér grein fyrir mismunandi tjáningarhætti manna með látbragði, orðum og svipbrigðum, skilja hvað í þessu felst og geta tekið þátt í umræðu um þessi efni
    Notast verður við fjölbreyttar námsmatsaðferðir og einkunn byggist m.a. á athugunum nemandans á ýmsum þáttum efnisins, skýrslum um rannsóknir, fyrirlestrum og þátttöku í umræðum um efni hans ásamt smáprófum og verkefnum ýmiskonar. Gera má viðveru og virka þátttöku að skilyrði til að standast áfangann.