Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1421745884.66

    Vinnubrögð og tjáning
    VITA2VT04(SB)
    1
    Vinnubrögð, tjáning
    Vinnubrögð, tjáning
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    SB
    Í áfanganum kynnast nemendur aðferðum og vinnubrögðum sem nýtast eiga þeim í námi. Vinnubrögð við ritsmíðar, rannsóknir og heimildavinnu eru kennd og þjálfuð. Tjáning í víðum skilningi og aðferðir sem miða að því að þjálfa nemendur í gagnrýninni hugsun og miðlun hennar eru markvisst notaðar. Nemendur eru þjálfaðir í upplestri, framsögn og leikrænni tjáningu. Þá er farið er í helstu þætti námstækni.
    Nemendur skulu hafa lokið a.m.k. einni önn í framhaldsskóla
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu reglum við ritgerðasmíð, rannsóknir og heimildavinnu
    • Helstu einkennum tungumálsins við flutning efnis
    • Mikilvægi skipulags og tímastjórnunar í námi
    • Lestrar- og glósutækni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Ganga frá heimildaritgerðum og hvers kyns texta
    • Nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra til betrumbóta
    • Tjá sig munnlega og skriflega með markvissum og skýrum hætti
    • Beita aðferðum námstækni í námi sínu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Skrifa vel uppbyggðan texta og beita málinu á viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður í ræðu og riti
    • Beita blæbrigðaríku máli við flutning á ýmiss konar efni
    • Taka virkan þátt í málefnalegum umræðum, tjá rökstudda afstöðu og útskýra sjónarmið
    • Virða ólík sjónarmið og skoðanir annarra
    • Skipuleggja nám sitt og nýta þá námstækni sem við á
    Notast verður við fjölbreyttar námsmatsaðferðir. Í því felst m.a. verkefnavinna, bæði munnleg og skrifleg, ræður og kynningar. Notast er við leiðsagnarmat og jafningjamat og þátttaka í tímum metin.