Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1422609148.78

    Stjórnmálafræði
    STJÓ2LJ05
    3
    stjórnmálafræði
    Lýðræði og jafnrétti
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er inngangur að stjórnmálafræði sem fræðigrein en einkum verða þrjú meginhugtök notuð sem útgangspunktar. Lýðræði, jafnrétti og mannréttindi. Farið er ítarlega í hugmyndir og kenningar um lýðræði. Lýðræði á Íslandi og íslenska stjórnkerfið er tekið sérstaklega fyrir. Jafnréttishugtakið skoðað frá mörgum sjónarhornum, t.d. út frá hugtökum á borð við kyn, kynhneigð, kynþátt o.fl. Unnið er með mannréttindahugtakið í tengslum við jafnrétti. Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar. Í fyrsta lagi eru fyrirlestrar kennara þar sem námsefnið er reifað og hugtök útskýrð. Þá eru umræður og loks verkefnavinna nemenda; úr námsefninu sjálfu eða öðru sem því tengist. Nemendur kynna sér sjálfir ýmislegt efni sem tiltækt er á netinu og vinna verkefni, jafnt einstaklings- sem hópaverkefni. Gert er ráð fyrir að nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum greinarinnar
    • • þýðingu greinar fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun
    • • hugtökum á borð við lýðræði, jafnrétti, mannréttindi
    • • stofnunum íslenska lýðveldisins og virkni þeirra
    • • helstu atriðum í tengslum við jafnréttisumræðu nútímans
    • • mannréttindum í víðum skilningi
    • • réttindum og skyldum þegna í lýðræðissamfélagi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt
    • • vinna á skilvirkan hátt og sýna frumkvæði og samvinnu við nám og störf
    • • verja rökstudda afstöðu sína
    • •taka þátt í umræðum og greina stjórnmálafræðileg málefni á gagnrýninn hátt
    • • nota lykilhugtök tengd efninu
    • • greina mismunun milli ólíkra hópa
    • • greina stjórnmála- og jafnréttisumræðu í fjölmiðlum og í daglegu lífi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • taka þátt í málefnalegum umræðum
    • • rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt
    • • efla siðferðilega dómgreind sína
    • • sýna frumkvæði í verkum sínum og samskiptum
    • • tileinka sér gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð í faginu
    • • gera sér grein fyrir samspili viðhorfa, umburðalyndis og fordóma
    • • finna, meta og greina heimildir og nýta þær í hagnýtum tilgangi
    • • verða virkur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
    • • taka virkan þátt í samfélagsumræðu um stjórnmál, lýðræði, jafnrétti og mannréttindi
    Lokaeinkunn í áfanga skiptist jafnt á milli lokaprófseinkunnar og vinnueinkunnar. Vinnueinkunn er byggð upp á ýmsum verkefnum, stórum sem smáum, stuttum kaflaprófum og mati á viðhorfum og virkni í námi.