Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1422609684.02

    Alþjóðahagfræði
    HAGF2AH05
    3
    hagfræði
    alþjóðahagfræði, alþjóðavæðing, gjaldeyrisviðskipti, milliríkjaviðskipti
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Hugmyndir og kenningar um milliríkjaviðskipti eru reifaðar og fjallað er um alþjóðlega samvinnu, viðskipti á heimsvísu, sérhæfingu og alþjóðavæðingu í efnahagsmálum. Alþjóðlegar stofnanir og samtök sem eru virk á efnahagssviði eru kynnt og skoðuð áhrif þeirra á íslenskt efnahagslíf. Fjallað er um alþjóðleg gjaldeyrisviðskipti, hlutverk seðlabanka og áhrif þeirra á hagkerfi. Fjallað er um gjaldeyrismál Íslands í kjölfar kreppunnar 2008. Námsefni og umfjöllunarefni er bæði á íslensku og ensku. Um bekkjarkennslu er að ræða. Fer kennslan fram m.a. með fyrirlestrum, samræðum innan bekkjarins og verkefnavinnu. Skoðuð eru myndbönd með efni sem varða viðfangsefni áfangans og innihald þeirra rætt. Fylgst er með fréttum, sérstaklega þær sem varða viðfangsefni áfangans. Nemendur vinna einnig verkefni sem þeir kynna fyrir samnemendum.
    HAGF1ÞF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • helstu kenningum og hugtökum alþjóðahagfræðinnar
    • • hlutverki seðlabanka og hvaða tækjum hann getur beitt til þess að hafa áhrif á efnahagslífið
    • • hagkvæmni milliríkjaviðskipta
    • • áhrifum af setningu hafta á viðskipti milli landa
    • • gjaldeyrishöftum og þeim áhrifum sem þau geta haft á hagkerfi
    • • helstu stofnunum alþjóðasamfélagsins og hlutverk þeirra
    • • því hvernig atburðir í einu hagkerfi hafa áhrif í öðru hagkerfi
    • • samskiptum íslenska hagkerfisins við önnur hagkerfi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • geta upp á eigin spýtur nálgast upplýsingar um íslenskt efnahagslíf og efnahagslíf annarra þjóða
    • • skilja hvaða afleiðingar inngrip seðlabanka geta haft
    • • vinna með gögn og setja þau upp á mismunandi hátt svo þau verði læsilegri
    • • túlka og skilja gögn sem sett eru fram
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • túlka og skilja gögn sem sett eru fram
    • • tjá sig um hagfræðileg málefni, bæði munnlega og skriflega
    • • lesa og skilja umfjöllun um hagfræðileg málefni
    • • taka ábyrgð á eigin námi
    • • lesa texta um hagfræðileg málefni á erlendu tungumáli
    Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti ýmis konar vinnu, verkefnum og ástundun nemandans á önninni.