Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1422613679.63

    Sálfræði
    SÁLF2GR05
    17
    sálfræði
    Grunnur í sálfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er grunnáfangi í sálfræði. Nemendur kynnast fræðigreininni sálfræði, eðli hennar, sögu og þróun. Helstu sálfræðistefnur eru kynntar og grunnhugtök greinarinnar skýrð. Starfssvið sálfræðinga verður skoðað sem og hagnýtt gildi sálfræði í daglegu lífi svo sem við nám og mótun hegðunar. Fjallað er um samspil hugsunar, hegðunar og tilfinninga, sjálfsmynd, mannleg samskipti, þróun náinna sambanda og almennt um mannlegt eðli. Loks eru helstu rannsóknaraðferðir kynntar. Kennslan er með fjölbreyttu sniði, fyrirlestrar kennara og nemenda, umræður og verkefni. Áhersla verður lögð á að nemendur þekki helstu rannsóknaraðferðir sálfræðinnar og þjálfist í vísindalegri hugsun og vinnubrögðum með því að framkvæma einfalda tilraun og skrifa skýrslu um niðurstöður samkvæmt viðurkenndum reglum.
    FÉLA1IS05 (FÉL103)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • þróun sálfræðinnar sem fræðigreinar
    • • grundvallarkenningum sálfræðinnar
    • • hagnýtu gildi sálfræðinnar í daglegu lífi
    • • helstu leiðum sálfræðinnar til að útskýra hugsun, hegðun og tilfinningar einstaklinga
    • • helstu mótunaröflum einstaklinga og hópa
    • • vísindalegum vinnubrögðum greinarinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • lesa og skilja helstu hugmyndastefnur sálfræðinnar
    • • beita hugtökum sálfræðinnar
    • • skoða eigin hegðun, hugsun og tilfinningar út frá hugmyndum sálfræðinnar
    • • skoða hegðun, hugsun og tilfinningar annarra út frá hugmyndum sálfræðinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • gera sér grein fyrir mótandi áhrifum umhverfisins á einstaklinginn
    • • skilja samspil hegðunar, hugsunar og tilfinninga
    • • geta yfirfært sálfræðilega þekkingu sína yfir á eigin sjálfsmynd
    • • geta tjáð sig á skipulagðan og gagnrýninn máta um sálfræðileg efni
    • • framkvæma einfalda rannsókn og rýna í helstu niðurstöður
    Námsmat er tvíþætt, gefin er vinnueinkunn sem gildir til helminga á móti lokaprófseinkunn.