Í áfanganum er kennt hvernig tölva er sett saman frá grunni. Nemendur setja upp stýrikerfi og forrit, skoða forrit til að leita að bilunum og laga þær og finna rekla o.fl. Kannað er hvaða minni, skjákort og harður diskur passa saman við uppfærslu.
Eingar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
samsetningu tölva frá grunni
hvaða minni, skjákort og harður diskur passa saman við uppfærslu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp stýrikerfi og forrit
að skoða forrit til að leita að bilunum og laga þær
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig almennt á uppbyggingu tölva, geta sett upp helstu forrit og stýrikerfi og greint og brugðist við bilunum eða villum í kerfinu
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.