Farið er í sögu einkatölvunnar og tíunduð öll þau helstu stýrikerfi sem verið hafa á markaðnum síðustu 20 árin. MS-Dos, Windows 3/95/98/ME/2000/XP/Vista/7 ásamt Open Source stýrikerfum eins og Ubuntu. Helstu notendaforrit skoðuð og uppsetning prófuð. Nemendur fá að reka sig á ýmis tæknileg vandamál sem upp geta komið þegar nýtt stýrikerf er sett upp, m.a. erfðleika með rekla, minni og stærð diska
Eingar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
á sögu einkatölvunnar
hvernig einmenningsstýrikerfi virka
hvaða stillingar þarf að framkvæma við uppsetningu á einmenningsstýrikerfi
viðhald á uppsetningum einmenningsstýrikerfa
nettengingu einmenningsstýrikerfa
öryggismál er snerta einmenningsstýrikerfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
uppsetningu á stýrikerfum fyrir einmenningstölvur
uppsetningu á forritum fyrir helstu stýrikerfi einmenningstölva
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp einmenningstölvur frá grunni
framkvæma aðgerðir til að auka afköst vélbúnaðar og stýrikerfis
þjónusta útstöðvar á innra neti
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.