Farið í grunnatriði er varða netkerfi og almenna kerfisstjórnun. Tíunduð eru öll helstu hlutverk sem kerfisstjóri hefur á höndum í daglegum rekstri fyrirtækja. Kynning á netstýrikerfum frá Microsoft. Uppsetning á netstýrikerfum frá Microsoft hlutar þeirra skoðaðir eins og Active Directory, DNS o.s.frv. Hlutverk netþjóna skoðuð og nemendur fá að reka sig á ýmis tæknileg vandamál sem upp geta komið þegar ný stýrikerfi eru sett upp.
USFS1ES05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig netstýrikerfi virka
hvaða stillingar þarf að framkvæma við uppsetningu á netstýrikerfi
viðhald á netstýrikerfum
nettengingum og stillingum þeirra er snúa að netstýrikerfum
öryggismálum er snerta netstýrikerfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
uppsetningu á stýrikerfum fyrir netþjóna
uppsetningu á forritum fyrir netstýrikerfi
stillingar á forritum fyrir netstýrikerfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp og reka netþjóna
framkvæma þær stillingar og aðgerðir er stuðla að hámarks afköstum vél- og hugbúnaðar
þjónusta netþjóna sem tengdir eru á innra neti
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.