Meginmarkmið áfangans er að nemendur lesi frönsku sér til ánægju og gagns og þjálfist í að nota tungumálið til að tala um efni sem þeir hafa lesið og kynnt sér. Áfanginn er að stórum hluta einstaklingsmiðaður þar sem nemendur velja að mestu það efni sem þeir vinna með. Hann hentar því vel þeim nemendum sem langar að efla og dýpka frönskukunnáttu sína á eigin forsendum og kynnast betur mannlífi og menningu frönskumælandi landa. Unnið verður með einfaldar skáldsögur, smásögur, ævintýri, ljóð, teiknimyndasögur, tímaritsgreinar o.fl. Einnig horfa nemendur á a.m.k. eina kvikmynd og fjalla um hana á svipaðan hátt og lesefnið. Í upphafi áfangans eru nokkrar hefðbundnar kennslustundir þar sem efnisflokkar og vinnubrögð eru kynnt. Eftir það vinna nemendur hver fyrir sig en geta leitað aðstoðar kennara. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur kynna verkefni sín í einkaviðtölum við kennara með reglulegu millibili eða skila skriflegum greinargerðum.