Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1425735615.65

    Kvikmyndir
    DANS2KV05
    25
    danska
    kvikmyndaáfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Lögð er áhersla á danskar kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem og tiltekna leikara og leikstjóra. Kynnt er dönsk kvikmyndasaga í máli og myndum. Fjallað er um leikara og leikstjóra sem skarað hafa fram úr í danskri kvikmyndagerð og einnig um þær kvikmyndir sem taldar eru tímamótaverk og eru samnefnari fyrir þá strauma og stefnur sem ríkjandi hafa verið á ákveðnum tímabilum. Þá eru sýndar valdar kvikmyndir í kjölfar kynninga nemenda á tilteknum leikara og/eða leikurum, efni og þeirri samtímasögu sem endurspeglast í verkunum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögu kvikmyndagerðar í Danmörku.
    • helstu stefnum og straumum sem ríkjandi hafa verið í danskri kvikmyndagerð.
    • þeim kvikmyndum sem markað hafa tímamót í danskri kvikmyndagerð.
    • verkum danskra kvikmyndaleikstjóra sem skarað hafa fram úr og/eða unnið til alþjóðlegra verðlauna.
    • dönskum leikurum sem hafa hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir leik sinn í kvikmyndum á hvíta tjaldinu.
    • danskri menningu eins og hún birtist í kvikmyndaflórunni.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja danskar kvikmyndir, tungumálið, leikara og umhverfi.
    • greina kvikmyndir í samræmi við þau hugtök og verkefni sem unnið er út frá í áfanganum.
    • þekkja þekkta/fræga danska leikara í dönskum kvikmyndum sem og öðrum kvikmyndum.
    • fjalla munnlega um þekkt efni, s.s. danska leikara og kvikmyndir, án þess að styðjast við ritaðan texta.
    • tengja valdar kvikmyndir við danska menningu og samhengið við danska kvikmyndasögu.
    • flytja mál sitt með skipulögðum hætti á skilmerkilegri dönsku og útskýra og rökstyðja verkefni á sannfærandi hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta vel þá tungumálakunnáttu sem er til staðar og tjá sig munnlega af nokkru öryggi.
    • skilja betur en áður mælt mál í dönskum kvikmyndum og þáttum og einnig í Danmörku
    • geta greint á milli norrænna tungumála þ.e. sænsku, norsku og dönsku.
    • eiga auðveldara með að laga sig að og skilja danskt samfélag sem og önnur norræn samfélög.
    • þekkja og geta bent á danska leikara í hlutverkum í dönskum kvikmyndum og þáttum.