Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1426517038.11

    Lokaverkefni í kvikmyndun
    KVMG3LO05
    8
    kvikmyndagerð
    Kvikmyndagerð, stuttmynd lokaverkefn
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum vinna nemendur stuttmynd sem lokaverkefni frá þróun handrits til sýningar í kvikmyndahúsi. Veitt er þjálfun í þróun hugmynda ásamt nauðsynlegri tækni til að útfæra hugmyndir og fullvinna verk. Lögð er áhersla á að nemendur nýti sér þá sérhæfðu þekkingu og færni sem þeir hafa aflað sér í kvikmyndagerð, leiklist og grafískri hönnun. Mikil áhersla er lögð á skapandi hugsun, gagnrýna sýn, sjálfstæð vinnubrögð, samvinnu og skipulag.
    KVMG2FK05, KVMG2HE05, KVMG3FR05, KVMG2FG05, KVMG3ÚV05, KVIS2LI05, KVMG2HV05, HGKV2AH05, KVMG4RT05, GRHÖ1GH05 (KVI2A05, KVI2B05, KVI3A05, STU2A05, UTS3A05, SGK2A05, HLK2A05, HGK2A05, VEK3A05, GRA2A05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig nýta má þá sérhæfðu þekkingu sem hann hefur aflað sér við framsetningar á eigin verkum.
    • þeim tækjum og hugbúnaði sem nauðsynlegur er í kvikmyndagerð.
    • mikilvægi þess að fylgjast vel með því sem er að gerast í listum og menningu líðandi stundar.
    • sýni sérstöðu og einstaklingsstyrk.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja og vinna stutta kvikmynd sem byggir á sérhæfði þekkingu í handritaskrifum og kvikmyndagerð.
    • rökstyðja ákvarðanir á faglegum grunni.
    • kynna og greina frá inntaki verksinns á skipulagðan og greinagóðan hátt.
    • afla sér nauðsynlgra viðbótaþekkingar.
    • lesa og útskýra verk annara af víðsýni og þekkingu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • þróa hugmyndir sínar og sýna áræðni við útfærslu þeirra og túlkun. Námsmat: leiðsagnar- og frammistöðumat.
    • Fjalla um og meta eigin verk á upplýstan og greinagóðann hátt. Námsmat: sjálfsmat og frammistöðumat
    • greina og tjá sig um og meta verk annarra af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi. Námsmat: frammistöðumat.
    • nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við sköpun. Námsmat: frammistöðumat.
    • skila af sér heilsteyptum verkum og koma þeim á framfæri. Námsmat: Leiðsagnar-, frammistöðu-, jafningja- og sjálfsmat.
    Leiðsagnarmat, frammistöðumat, jafningjamat og sjálfsmat.