Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1426586653.2

    Íþróttagrein-Handbolti
    ÍÞRG1HA02
    8
    íþróttagrein
    handknattleikur
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum undirstöðuatriði í hanknattleik. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur þjálfist í kennslu handknattleiks og leikreglum. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í handknattleik
    • kennslu grunntækni í handbolta
    • kennslu leikfræðinnar fyrir börn og unglinga
    • skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
    • leikreglum
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í handbolta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur
    • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
    • stunda handbolta og miðla því frá sér
    • þjálfun í handbolta
    • sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttinni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta þjálfað ýmsa aldurshópa í handbolta
    • geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
    • geta kennt börnum rétta tækni í handbolta
    • geta beitt fjölbreyttum aðferðum við þjálfun
    • geta stundað íþróttina handbolta