Í áfanganum fá nemendur fá innsýn í feril búningagerðar fyrir gefið sviðsverk. Gagnasöfnun er framkvæmd með upplýsingaleit í bókasöfnum og /eða á neti. Hugmyndakort og unnið með samsetningu skissa, úrklippa, útprents og stikkorða. Tillögur að búningi á ákveðna persónu eru skissaðar og settar upp í vinnubók. Grunnsnið er unnið út frá tilbúnu sniði og það lagað að hugmynd nemandans. Prufuflík er mótuð út frá sniði, gjarna á gínu. Leitast er eftir að útvega viðeigandi textílefni í einfaldan búning, annað hvort á heila gínu, persónu eða sem hluta af búningatillögu. Vettvangsferðir eru farnar og sýning verður á verkum nemenda
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
gagnasöfnun í formi þankahríðar og gerð hugmyndaspjalds út frá gefnu þema
hvernig afla má upplýsinga út búningasögu yfir ákveðin, afmörkuð tímabil
upplýsingaöflun varðandi sviðverk það sem skal unnið með
mikilvægi textílefna í búningagerð
orðaforða búningahönnunar í víðustu merkingu þess
geta unnið með skýringarmyndir og vinnulýsingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
móta tillögu að búningi fyrir ákveðið sviðsverk
taka upp snið úr sniðablaði eða bók og móta eftir eigin hugmyndum
sníða einfalda flík eða hluta af flík og sauma saman svo úr verði nothæf heild
máta snið og breyta því eftir þörfum
nota orðaforða greinarinnar við notkun vinnulýsinga
setja búningahönnun sína fram, í tengslum við sviðsmynd, t.d. með skissu eða mótun af sviði og búningi í pappír
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fullvinna búning frá hugmynd að fullunnu verki
skila af sér skilmerkilegri hugmyndavinnu og vinnulýsingu svo hægt sé að fara eftir henni
vinna hönnun sína út frá heild og/eða sögu
skila frá sér fullunnu verki með vinnuteikningum og vönduðum
Verkefni nemenda metin: T.d snið, útfærsla á hugmynd, mæting og virkni og saumur