Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1426601129.87

    Notað og nýtt
    TEXT1EV05(SB)
    5
    textílhönnun
    Endurvinnsla
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    SB
    Í áfanganum vinna nemendur textílverkefni upp úr eldri textíl sem má blanda með nýju efni. Vinnan verður að hluta til unnin í samstarfi við góðgerðarfélag. Kennari leggur inn þrjú til fjögur verkefni í hverri viku og nemendur skoða heima og velja úr og koma undirbúnir í tíma. Nemendur fara í vettvangsferðir og kynnast fatasöfnun og að endurvinna sé gott fyrir umhverfið og fjárhag. Nemendur sýna verkefni sín og fara í vettvangsferðir
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugmyndavinnu
    • undirbúningi verkefna
    • notkun verklýsinga
    • einfaldri sníðagerð
    • störfum góðgerðafélags
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrá hugmyndir
    • vinna eftir verklýsingu
    • skrá verklýsingu
    • skilja samband milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og niðurstöðu
    • skilja einfalda sníðagerð
    • skilja út á hvað endurvinnsla gengur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna verkefni frá hugmynd að tilbúnu verki
    • til að finna notuðu efni nýtt hlutverk
    Námsmat í áfanganum getur meðal annars falið í sér mat á mætingu, virkni, vinnubrögðum, frágangi, skráningu verkefna í vinnubók, hugmyndum, hönnun og verkefnum