Unnið er með breiðbogaföll, diffrun og heildun þeirra. Helstu reglur varðandi þau eru sannaðar. Borin saman pólhnitakerfið og rétthyrnda hnitakerfið og jöfnur umritaðar frá öðru kerfinu yfir í hitt. Tvinntölur kynntar og unnið með helstu reiknireglur sem þar gilda. Fylkjareikningur kynntur og notkun hans, t.d. hvernig fundin er besta lína og hvernig stór jöfnuhneppi eru leyst með fylkjareikningi
STÆR3HI05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
breiðbogaföllum
pólhnitakerfinu
tvinntölum
2. stigs diffurjöfnum
fylkjareikningi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
diffra og heilda breiðbogaföll
nota pólhnit
geti notað helstu reiknireglur fylkjareiknings
notað tvinntölur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
orða kunnáttu sýna og útskýra niðurstöður útreikninga sinna í samræðum um efnið við kennara og bekkjarfélaga
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
greina frá hvar og hvernig námsþættir áfangans eru nýttir í raunverulegum aðstæðum
Byggist á fjölbreyttu námsmati, m.a. heimaverkefnum, hópverkefnum, smærri verkefnum, prófum og virkni í tímum