Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1427137332.78

    Viðskiptalögfræði
    LÖGF3LV05
    3
    lögfræði
    Viðskiptalögfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Kynnt eru grundvallaratriði íslenskrar stjórnskipunar og réttarkerfis. Fjallað verður um grundvallarhugtök og fræðikerfi lögfræðinnar. Fjallað verður um hugtakið réttarheimild og allar helstu tegundir réttarheimilda sem beitt er í íslenskum rétti. Áhersla er lögð á kynningu á almennum lögum með áherslu á lög sem tengjast viðskiptalífinu. Áfanginn miðar að því að gefa nemendum innsýn í umfang löggjafar á þessu sviði.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallaratriðum í sambandi við löggjöf og aðrar réttarheimildirí íslenskri stjórnskipan
    • meginreglum í íslensku réttarfari og helstu farvegi mála í gegnum dómstóla og aðrar stofnanir réttarkerfisins
    • almennum reglum sem varða samninga, umboð og aðra löggerninga
    • lögum um lausafjárkaup og fasteignakaup
    • helstu lögum og reglum er varða kröfur og skuldbindingar
    • helstu lögum um skaðabætur og vátryggingar
    • ýmsu rekstrarformum í atvinnurekstri hvað snertir ábyrgð eigenda og fleira
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta sér grunnþekkingu í lögfræði og beita henni við lausn mála sem tengjast:
    • samningum og öðrum löggerningum
    • lausafjárkaupum og fasteignakaupum
    • skaðabótum og vátryggingum
    • hinu ýmsu rekstrarform er varða ábyrgð eigenda
    • erfðum, hjúskap og barnarétti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir réttindum sínum og skyldum sem þegn í lýðræðisþjóðfélagi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá