Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1427295495.25

    Hreyfing
    ÍÞRÓ1HR02
    59
    íþróttir
    heilsurækt
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Áfanginn er verklegur og miðar að því að nemendur fái almenna líkamlega hreyfingu og þjálfun á fjölbreyttan hátt. Leitast verður við að nemandi geti fundið sér hreyfingu við hæfi. Nemendur kynnast mismunandi hreyfingu og íþróttagreinum sem þeir geta stundað sem hluta af sínum lífsstíl í framtíðinni. Í áfanganum er lögð áhersla á verklega og fræðilega þætti upphitunar, þols, styrks og liðleika. Þá verða nemendum kynntar aðferðir við mælingar á þoli, styrk og liðleika.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • nauðsyn góðrar upphitunar
    • mun á almennri upphitun, sérhæfðri upphitun og óvirkri upphitun
    • leikreglum í helstu íþróttagreinum
    • mikilvægi þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita aðferðum við almenna og sérhæfða upphitun
    • stunda helstu íþróttagreinar
    • beita félagsfærni
    • beita mismunandi aðferðum til að mæla þol, styrk og liðleika
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta séð um almenna og sérhæfða upphitun fyrir hóp
    • leysa af hendi verkefni, æfingar og leiki sem viðhalda og bæta þol, styrk og liðleika
    • viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu sem er metið með verkefnum, prófum og ástundun