Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1427299461.99

    Inngangur að heimspeki
    HEIM2IN05
    21
    heimspeki
    inngangur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum eru kenningar áhrifaríkustu heimspekinga í vestrænni heimspekisögu reifaðar og rökræddar. Áhersla er lögð á siðfræði og stjórnspeki. Tengsl heimspekinnar við önnur fræðasvið eru skoðuð og rædd. Sérstök áhersla er lögð á að flétta saman heimspeki við daglegt líf og persónulega reynslu nemenda. Nemendur eru þjálfaðir í gagnrýninni hugsun, skoðanaskiptum, virkri hlustun og lestri frumtexta.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • kenningum áhrifaríkustu heimspekinga í vestrænni heimspekisögu
    • helstu hugtökum heimspekinnar
    • áhrifaríkustu kenningum siðfræðinnar og stjórnspekinnar
    • tengslum heimspekinnar við önnur fræðasvið
    • undirgreinum heimspekinnar
    • áhrifum heimspekinnar á hugmyndir okkar og hugsun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rökræða með virkri hlustun og eigin tjáningu
    • átta sig á góðum og slæmum rökum
    • tjá sig í ræðu og riti á skipulegan og gagnrýninn hátt um heimspekileg málefni
    • túlka heimspekikenningar á skapandi hátt
    • lesa heimspekitexta
    • spyrja og svara heimspekilegum spurningum
    • tengja heimspeki við persónulega reynslu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita skipulegum vinnubrögðum á gagnrýninn hátt við lausn verkefna
    • vera gagnrýninn og ábyrgur þátttakandi í samfélaginu
    • taka upplýstar ákvarðanir í siðferðilegum málefnum
    • sjá hvernig ríkjandi hugmyndafræði hefur áhrif á skoðanir og stöðu fólks í samfélaginu
    • átta sig á hvernig hann hefur áhrif á umhverfið í kringum sig
    • geta á gagnrýninn hátt greint góðar og slæmar röksemdafærslur í ræðu og riti
    • tjá sig í ræðu og riti á gagnrýninn og skapandi hátt við mismunandi aðstæður
    • byggja upp jákvæða og uppbyggilega félags- og samskiptahæfni
    Fjölbreytilegt námsmat með áherslu á símat, tíða endurgjöf og leiðsögn. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir einstaklings- og samvinnuverkefni. Munnlegt eða skriflegt lokapróf eða hvort tveggja.