Áfanginn er inngangsáfangi í sögu á öðru þrepi og er skylda á Félagsvísindabraut. Nauðsynlegur undanfari fyrir alla aðra söguáfanga hvort sem þeir eru á öðru eða þriðja stigi. Viðfangsefnið eru þættir úr sögu heimsins og Íslands til okkar daga. Skoðaðir verða helstu stóratburðir tímabilsins en jafnframt leitast við að öðlast innsýn í daglegt líf almennings á Íslandi eða í Evrópu. Leitast er við í áfanganum að uppfylla grunnþætti menntunar og að nemendur geti lesið fræðitexta um sitt nánasta samfélag og sögu þess. Þá fá nemendur innsýn í mikilvægi sjálfbærni, sögu heilbrigðis og velferðar í íslensku samfélagi. Nemendur öðlist færni og skilning á hugtökum á borð við lýðræði og mannréttindi. Fjallað verður um jafnréttisbaráttu kvenna á Íslandi. Nemendur þjálfa sig í sköpun með ýmsum verkefnum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróun íslensks samfélags frá 1800 til 2000
áhrifum frönsku byltingarinnar og frelsisstríðs BNA á stjórnmálaþróun á 19. öld
breytingum sem hafa orðið á hugmyndum um þjóðríkið á tímabilinu
ástæðum og áhrifum sjálfstæðisbaráttu Íslendinga
ástæðum og afleiðingum heimstyrjaldanna tveggja bæði á Íslands- og mannkynssöguna
hugmyndum íhaldsstefnunnar, frjálslyndisstefnunnar og sósíalismans
orsökum og afleiðingum stofnunar Sovétríkjanna
orsökum og afleiðingum Kalda stríðsins
atvinnusögu Íslendinga og stéttabaráttu á 19. og 20. öld
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með staðreyndir og kenningar
beita grundvallarvinnubrögðum í heimildarýni og heimildaleit
temja sér öguð vinnubrögð og nota ýmsar aðferðir til að leysa verkefni sín
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja fram skoðanir sínar í riti, ræðu eða öðru formi
geta borið saman atburði og finna orsakasambönd á milli þeirra
geta tekið þátt í umræðum um efnisþætti áfangans og færa rök fyrir skoðunum sínum
Námsmat áfangans er fjölþætt. Það samanstendur af ýmsum verkefnum, ritgerðum og prófum. Þá er einnig leitast við að meta umræður nemenda um söguleg málefni og afleiðingar atburða