Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428936295.79

    Inngangur að sálfræði
    SÁLF2HS05(SB)
    37
    sálfræði
    Hugræn sálfræði, atferlisfræði, félagssálfræði, rannsóknaraðferðir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    SB
    Áfanginn er kynning á sálfræði, nokkrum helstu undirgreinum hennar og aðferðum sálfræðinnar. Setja skal efni og aðferðir í samhengi við nútíma samfélag bæði það sem er að gerast innan sálfræðinnar og sýna hvernig sálfræðin kemur daglegu lífi við. Undirgreinar sem kynna má eru hugfræði, atferlisfræði, lífeðlisleg sálfræði, persónuleikasálfræði, félagssálfræði, þroskasálfræði, afbrigðasálfræði, dularsálfræði, tilraunasálfræði. Nemendur skulu kynnast fræðilegum og hagnýtum aðferðum sálfræðinnar; aðferðum við rannsóknir, skrifum og birtingu rannsóknarskýrslna, sálfræðimeðferð og –ráðgjöf og hvernig einstaklingur getur beitt aðferðum sálfræðinnar fyrir sjálfan sig
    Nemendur hafi lokið 30 einingum í framhaldsskóla sem samsvarar u.þ.b. einni önn
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • á nokkrum helstu nútíma kenningum og hugtökum í sálfræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sálfræðitexta
    • ræða sálfræði
    • beita aðferðafræði sálfræðinnar
    • bera saman hugtök og kenningar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • til að setja sálfræði í samhengi við einkalíf samfélag og fræðilegt starf
    • tjá sig skipulega í ræðu og riti og tekið þátt í umræðum um sálfræði
    Skal vera fjölbreytt og skal reyna á þekkingu á sálfræðikenningum og leikni í aðferðum sálfræðinnar