Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429024811.3

    Hlífðargassuða stálsmiða 2
    HLGS3MA05
    1
    Hlífðargassuða
    Magsuða
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Að námi loknu geta nemendur undirbúið og soðið MAG-suðu á stáli á eigin spýtur þar sem notaðir eru gegnheilir og duftfylltir vírar. Þeir geta soðið efnisþykktir 8 - 12 mm í stáli samkvæmt gæðaflokki C (ÍST EN 25817) í plötu í opinni V-rauf, gegnumsoðið frá annari hlið í suðustöðum PA, PC og PF, soðið rör í láréttri og lóðréttri stöðu og PD-FW. Þeir geta skipulagt suðuverkefni m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Nemendur geta soðið eftir suðuferlislýsingum. Þeir öðlast þekkingu á afköstum og hagkvæmni mismunandi suðuvíra og aðferða.
    XXX (MAG1A05/TIG1A05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • suðuferlislýsingum og gildi þeirra.
    • áhrifum mismunandi skögunar vírs á straumstyrk, afköst og innbræðslu.
    • hlutverki duftsins í duftfylltum vírum.
    • helstu gerðum af suðuraufum og notkun bakleggs.
    • eiginleikum, flokkun og meðferð duftfylltra víra.
    • gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á stáli, hlutverki hlífðargassins og réttum stillingum á gasflæði.
    • eiginleikum úðaboga- og stuttbogasuðu.
    • búnaði til hitameðhöndlunar.
    • stöðlum um forhitun stáls þeim þáttum sem hafa áhrif á kólnunarhraða.
    • helstu suðugöllum, sérstaklega þeim sem algengir eru í þykkum efnum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • sjóða í suðustöðum PA-BW, PA-FW, PB-FW, PF-BW, PF-FW, PC-BW og PD-FW
    • sjónmeta algengustu suðugalla og orsakir þeirra.
    • sjóða eftir suðuferlislýsingum.
    • meta með aðstoð handbóka hvenær þörf er forhitun stáls fyrir suðu.
    • sjóða rör í plötu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • mæla og skrá viðeigandi upplýsingar varðandi suðuverkefnið, s.s.forhitunarstig, raufarstærð og aðrar upplýsingar fyrir suðuferlislýsingar.
    • velja vír m.t.t. efnis og suðuraufar.
    • gegnumsjóða 12 mm stálplötu öðru megin frá í PC- og PF-stöðu.
    • nota handbækur og töflur við vinnu sína.
    Námsmat byggir á verkefnavinnu og prófum. Leitast er við að beita aðferðum leiðsagnarmats.