Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429025824.49

    Handavinna málmiðna 1
    HAMÁ1NH05
    1
    Handavinna málmiðna
    Notkun á handverkfærum
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur læra að kynnast notkun á helstu handverkfærum og einföldum rafmagnsverkfærum svo sem handborvélum og standborvélum. Þeir kynnast eðli mismunandi málma við smíðar á hverskyns íhlutum. Að áfanganum loknum geta nemendur smíðað einfalda hluti úr málmi.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meðferð og umhirðu verkfæra.
    • mælitækjum og uppmerkitækjum.
    • notkun slípibanda og smergelskífa.
    • öryggisreglum við borun og slípun.
    • almennum öryggisreglum á vinnusvæði.
    • mikilvægi þess að ganga þrifalega um vinnusvæði sitt.
    • mikilvægi þess að ganga á réttan hátt frá spilliefnum, t.d. olíu og olíublautum pappír.
    • mikilvægi góðrar loftræstingar.
    • undirstöðuatriðum heilsuverndar.
    • réttri notkun hlífðarfatnaðar og persónuhlífa.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • smíða hluti úr mismunandi málmum.
    • lesa af teikningum.
    • beita mælitækjum og uppmerkitækjum.
    • velja bora eftir efnum sem bora skal og snúningshraða eftir borstærð og efnum.
    • velja rétta borstærð í töflu eftir stærð snitttappa sem nota á.
    • velja réttar þjalir fyrir efni og áferð.
    • beita helstu hjálpartækjum, t.d. rissnál,vinkli,hæðarrissi og hringfara við uppmerkingu á efni fyrir vinnslu.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • efna niður og málsetja einfalda hluti úr málmi sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • ákveða rétta vinnsluaðferð sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • bora í málma af mismunandi gerðum og þykktum sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • beita snitti til skrúfugerðar sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • beita réttri yfirborðsmeðhöndlun miðað við efnisgerð og notkun sem metið er með verklegum og skriflegum æfingum.
    • Gera sjálfstætt mat að loknu verkefni sem metið er með skýrslum sem gerðar eru um verklegar æfingar.
    Námsmat er í formi verklegra æfinga, þar sem nemandi beitir þeim tækjum og tólum sem við eiga og vinnur með það efni sem fyrir er lagt. Nemandi metur sjálfur eigin frammistöðu ásamt kennara. Nemandi gerir grein fyrir framkvæmd æfinganna í skýrslum sem hann skilar til kennara.