Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429112249.78

    Iðnteikning málmiðna 2
    IÐNT3ML05
    1
    Iðnteikning
    Málmiðn 2
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur öðlast frekari þjálfun í lestri og gerð fagteikninga samkvæmt gildandi stöðlum og reglum um véla- og málmsmíðateikningar. Þeir geta teiknað og útfært smíða- og samsetningarteikningar fyrir einstök verkefni. Algeng forrit sem notuð eru við gerð teikninga eru kynnt, s.s. Inventor og Solid Work.
    IÐNT2MI05 (ITM2A05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hornréttum fallmyndum.
    • mælikvörðum.
    • strikagerðum teikninga.
    • reglum um málsetningu og teikniskrift.
    • sniðum og skástrikunum.
    • skrúfgöngum.
    • málviki.
    • suðufúgum og suðutáknum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og teikna almennar teikningar sem gerðar eru eftir gildandi stöðlum.
    • teikna vinnuteikningar af samsettum smíðahlutum eftir samsettri heildarteikningu.
    • teikna hlutateikningar og samsetningar fyrir plötusmíði.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa og teikna almennar teikningar.
    • velja stærð teiknipappírs, staðsetja teikningu, ákvarðað hæfilegan mælikvarða og aðra uppsetningu.
    • setja inn snið og málsetja teikningu þannig að hún sé nothæf til að smíða eftir.
    • teiknað stöðluð form fyrir staðlaða íhluti samkvæmt upplýsingum framleiðenda (legur, pakkningar, tannhjól o.s.frv.).
    • teikna ísómetrískar teikningar af vélahlutum og kerfismyndir.
    • gera efnis- og tækjalista eftir teikningum.
    • nota handbækur við gerð flókinna teikninga.
    • gera samsetningarmyndir af flóknum hlutum.
    Verkefnaskil og próf. Leiðsagnarmati beitt eftir því sem kostur er.