Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429353723.04

    Fatlanir og samfélag
    FÖFR2MF05
    1
    Fötlunarfræði
    Málefni fatlaðra í sögulegu ljósi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Fjallað verður um þróun í málefnum fatlaðra í sögulegu ljósi og mismunandi hugmyndafræði að baki þeirri þjónustu sem þeim er veitt. Einnig verður fjallað um lagalegan- og siðferðilegan rétt fólks með fötlun til þjónustu, m.a. til menntunar, búsetu og atvinnuþátttöku. Skoðuð er ýmis þjónusta fyrir fólk með sérþarfir og sjónum beint að mannréttindum, jafnrétti og lífsgæðum sem oft felast í góðri þjónustu.
    FÖFR1FÞ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ríkjandi hugmyndafræði um stöðu og réttindi fólks með fötlun.
    • gildandi lögum um þjónustu við fólk með fötlun hvað varðar menntun, atvinnu og búsetu.
    • þróun laga og hugmyndafræði í sögulegu ljósi.
    • umræðu fræðimanna um samfélag án aðgreiningar og um blöndun.
    • ýmsum hugtökum er varða stöðu fólks með fötlun, s.s. réttindi, skyldur, jafnrétti og mannvirðing.
    • mismunandi leiðum í nálgun tómstunda fyrir alla.
    • almennri þjónustu sem ríki og sveitarfélög ásamt hagsmunasamtökum veita.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina ríkjandi hugmyndafræði um stöðu og réttindi fólks með fötlun.
    • lesa gildandi lög um þjónustu við fólk með fötlun.
    • greina þróun laga og hugmyndafræði í sögulegu ljósi.
    • rökræða um ólíka sýn fræðimanna á samfélag án aðgreiningar og um blöndun.
    • nota og skilgreina ýmis hugtök er varða stöðu fólks með fötlun, s.s. réttindi, skyldur, jafnrétti og mannvirðing.
    • afla upplýsinga um almenna þjónustu sem ríki og sveitarfélög ásamt hagsmunasamtökum veita og upplýsa skjólstæðinga sína.
    • aðstoða einstaklinga við að leita réttar síns og nýta þá þjónustu sem þeir eiga rétt á eða hafa kost á.
    • afla upplýsinga um mismunandi leiðir í nálgun tómstunda fyrir alla.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina ríkjandi hugmyndafræði um stöðu og réttindi fólks með fötlun, kortleggja ólík sjónarmið sem þar koma fram og nota þekkinguna til að vega og meta „bestu“ leiðir í þjónustu. Metið með jafningjamati í umræðum og skriflegu verkefni.
    • lesa gildandi lög um almenna og sértæka þjónustu við fólk með fötlun og setja fram lausnir á „málum“ sem m. a. er metið með rökstuðningi lausna fyrir samnemendum.
    • gera sér grein fyrir áhrifum af þróun laga og hugmyndafræði og tengja þau við viðhorf, réttindi og þjónustu nútímans á Íslandi. Metið með verkefnalausnum ásamt málstofum þar sem lausnir eru greindar og rökstuddar.
    • afla upplýsinga og stuðla að uppbyggingu á tómstundum fyrir alla. Metið með hópverkefni.
    • vinna að velferð fólks með fötlun með því að upplýsa skjólstæðinga á hlutlausan hátt um þá opinberu og óopinberu þjónustu sem býðst. Mælt með greiningar- og lausnarverkefnum, jafningjamati og umræðum.
    • sýna sjálfstæð vinnubrögð og að hann geti deilt með öðrum þekkingu, fordómaleysi og getu til að koma til móts við og þjónusta fólk í ólíkum aðstæðum. Metið með greiningar- og lausnarverkefnum, jafningjamati og umræðum.
    • yfirfæra fyrri reynslu og þekkingu við úrlausnir nýrra viðfangsefna. Metið með dagbókarskrifum um lausnarmiðuð verkefni.
    Námsmat er fjölbreytt og byggist á einstaklings- og hópverkefnum byggðum á námsefni frá kennara og upplýsingaleit á neti um réttindi og þjónustutilboð. Veigamikill þáttur í námsmati er virkni og frumkvæði í lausnarmiðaðri umræðu um siðferðileg málefni. Lokaverkefni með heimildavinnu og kynningu. Áhersla er lögð á að nemendur miðli eigin reynslu úr lífi og starfi til annarra í áfanganum.