Nemandi öðlast undirstöðu í ensku með lestri texta sem hæfir getu hans. Framsögn og umræður um efni texta og áhugamál. Ritun stuttra formlegra texta; frásagna, skilaboða og lýsinga. Námsefni og ítarefni er valið með hliðsjón af framtíðaráformum nemanda í námi og starfi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins.
Mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál.
Helstu samskiptavenjum í þeim löndum sem um er að ræða.
Grundvallarþáttum málkerfisins.
Formgerð og byggingu texta og mismun á töluðu og rituðu máli.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega.
Lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni.
Taka þátt í almennum samræðum um efni sem nemandi þekkir eða hefur áhuga á.
Beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi.
Skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og nota viðeigandi málfar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Fylgjast með frásögnum og erindum, ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt.
Afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í náminu.
Tileinka sér aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum og leiðbeiningum. Draga ályktanir af því sem hann les.
Lesa sér til ánægju og þroska skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína.
Takast á við margvíslegar aðstæður í almennum samskiptum, beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum og halda samtali gangandi.
Miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, vonum og væntingum.
Útskýra og rökstyðja ákvarðanir og fyrirætlanir. Miðla málum.