Í þessum áfanga eiga nemendur að ná tökum á undirstöðuatriðum ritsmíða af ólíkum gerðum. Í tengslum við ritsmíðar er komið inn á reglur í stafsetningu, málfræði og málnotkun. Nemendur skulu lesa ýmsa ólíka texta, s.s. skáldsögu, smásögur, fréttapistla, tímaritsgreinar, ljóð og bloggtexta og verði um leið meðvitaðir um jafnrétti og lýðræði og læsir á samfélagið í víðum skilningi. Um leið væri farið í örfá bókmenntahugtök. Þá fá nemendur þjálfun í hraðlestri og tjáningu.
Nemendur hafi lokið við ISLE1UA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sjálfstæðum vinnubrögðum við gerð ritsmíða
undirstöðuatriðum í stafsetningu
helstu orðflokkum og auðveldum málfræðiatriðum
stuðlasetningu og rími
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stafsetningu
ritun einfaldra, ólíkra texta
notkun ýmissa hjálpargagna, t.d. hugarkorta, glósuforrita, hljóðskráa, orðabóka og leiðréttingarforrita
notkun einfaldra málfræðihugtaka í rituðu og mæltu máli
lestri ólíkra texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
rita einfalda texta
beita einföldum málfræðihugtökum í ritmáli og talmáli
nota hjálpargögn við ritsmíðar og lestur
• Þekking er metin með lokaprófi, stuttum prófum og verkefnum sem unnin eru í kennslustundum.
• Leikni er metin út frá vinnubrögðum við uppsetningu ólíkra ritunarverkefna, skilningi á lesnum texta, málfari, tjáningu og frágangi.
• Hæfnin er metin í verkefnavinnu út frá samvinnu nemenda og skoðanaskiptum. Í ritun er hún metin út frá sjálfstæði, frumkvæði og málfari sem forðast einhæfni og endurtekningar.