Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1430392631.74

    Enska - lestur, talmál og orðaforði
    ENSK2LT05
    69
    enska
    lestur, orðaforði, talmál
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á sjálfstæðan lestur, málfræði, verkefnagerð og talmál. Kennsla fer fram á ensku og ætlast er til þess að nemendur svari kennara á ensku. Áfram er haldið með alhliða tal og talmálsþjálfun með mismunandi hætti með tilliti til ólíkra menningarheima enskumælandi landa. Nemendur eiga að geta lesið talsvert þunga texta t.d úr dagblöðum, tímaritum og kunna skil á þeim ólíku skáldverkum sem tekin verða til umfjöllunar og unnin verða verkefni úr. Áhersla er lögð á að auka orðaforða og nemendur eiga að geta skilið einfalt, ótextað sjónvarpsefni eða hlustunarefni og getað fylgst með og skilið orðaræðu um ólíka efnisflokka, en til þess eru þeir miðlar sem völ er á nýttir. Í skriflega þættinum er gerð krafa um flóknari setningaskipan, námkvæmari orðaforða og skipulegri framsetningu en í fyrri áfanga.
    Að nemandi hafi lokið við áfangann ENSK2LS05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum enskumælandi menningarheimum, t.d. Ástralíu og Nýja Sjáland
    • ólíkum þjóðfélagsaðstæðum bæði í Bretlandi og N-Ameríku
    • daglegu lífi og menningu, t.d. stjórnmál um og mannlífi
    • á fjölbreyttum dægurmálum enskar málsvæða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • kynna sér tiltekna þætti í menningu enskumælandi landa
    • tjá sig á ensku m.a. um dægurmál á enskum málsvæðum
    • nota ýmsar tegundir upplýsinga og gagna við almenna gagnaöflun, t.d. við ritgerðasmíð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fjalla munnlega og skriflega um menningu ólíkra enskumælandi samfélaga
    • glíma við erfiðari bókmenntatexta
    • átta sig á tengingu við önnur fög í náminu í gegnum enskuna
    • öðlast dýpri skilning á ólíkum hliðum á dægurmálum
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.