Hönnunarferli, frumgerðir rafeindatækni og forritun, vöruþróun
Samþykkt af skóla
3
5
FB
Markmið áfangans er að þjálfa nemendur í ýmsum þáttum sem lúta að kunnáttu sem krafist er á 21. öldinni. Þar sem tæknileg úrlausnarefni eru leyst og unnin í alþjóðlegu hópastarfi. Tengja þekkingu sem fyrir er við notkun á laserskera, vínylskera, fræsivél, þrívíddarprentun, þrívíddarskönnun og forritun. Aukin áhersla er á verkefnavinnu og teymisvinnu. Í áfanganum er farið yfir ferli vöruþróunar frá hugmynd að vöru. Farið er yfir hugmyndavinnu, skissutækni, hönnun í tví- og þrívídd, fræsingu afsteypumóta og gerð afsteypa. Farið er yfir nokkur grunnatriði forritunar, örgjörvar eru forritaðir og rafrásir gerðar. Þá er einnig farið í ferli við að koma vöru á framfæri og nemendur gera sína eigin frumgerð að vöru til framleiðslu.
FABL2FL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nýsköpun, hugverkarétti, höfundarétti
hugmyndavinnu, skissutækni
fræsivélum og gerð afsteypumóta
lestri rafteikninga
gerð rafrása, örgjafa og íhluta
starfrænni myndvinnslu ( rasterun)
forritun, Arduino, python
lokaverkefni í samráði við kennara
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
geta framkvæmt verkefni frá hugmynd til frumgerðar
geta unnið skissu að frumgerð og kynnt fyrir öðrum
geta unnið við fræsivél og gert afsteypumót
geta gert afsteypu í plast og gúmmí
lesa rafteikningar og búa til einfalda rafrás
lóða íhluti á rafrás
forrita rafrás
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta beitt helstu áhöldum og tækjum sem notuð eru í Fab Lab
lesa og vinna eftir leiðbeiningum
þróa hugmyndir sjálfstætt og undir leiðsögn
skilja og nýta sér vinnuferli frá hugmynd til afurðar
meta og rökstyðja vinnu sína á öllum stigum vinnuferlisins
geta unnið sjálfstætt eftir verkáætlun, sem hann gerir sjálfur
hanna, teikna og framleitt eigin afurð
Áfanginn er símatsáfangi. Námsmat byggist upp á mati kennara, sjálfsmati nemenda og jafningjamati.Við námsmat er horft til verklags, vandvirkni, frágangs, ígrundunar, rökstuðnings og þátttöku í kynningum á eigin verkum og annarra.
Þá er í áfanganum unnið lokaverkefni sem metið er eftir frumleika, notkun grunnreglna, efnisvali og aðferðum.