Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431091449.77

    ENSKA - Skilningur og orðaforði
    ENSK1EO05(SB)
    45
    enska
    Skilningur og orðaforði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    SB
    Áhersla er lögð á að nemendur öðlist góða færni í ensku. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér almennan orðaforða og í að nota málið og tjá sig á skýran og skipulegan hátt. Áhersla er lögð á lestur almennra og sérhæfðra texta með það fyrir augum að byggja upp virkan orðaforða og góðan skilning. Viðfangsefni eru: textalestur, orðaforði, ritun og málfræði
    Einkunn 5-8 í ensku uppúr grunnskóla eða að nemandi hafi lokið undirbúningsáfanga
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • notkun tungumálsins sem er nauðsynleg til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • lesskilningi sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja almennt mál
    • lesa almenna texta sér til gagns
    • beita málfari við hæfi í samskiptum
    • tjá sig skýrt og skipulega
    • skrifa ýmiskonar ritanir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja almennt talað mál
    • tileinka og nýta sér efni almennra ritaðra texta
    • lesa almenna og sérhæfða texta og geta tjáð sig skriflega um efni þeirra
    • tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt
    • skrifa margskonar texta eftir því sem hæfa tilefninu
    Notað verður fjölbreytt námsmat. Dæmi um námsmatsþætti gætu verið: Munnleg og skrifleg verkefni, smápróf, ritun, ástundun og lokapróf