Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431103751.69

    Þýska IV
    ÞÝSK2DD05
    17
    þýska
    Þýska 4
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    FB
    Þessi áfangi miðast við A2 í sjálfsmatsramma Evrópsku tungumálamöppunnar. Áfanginn er framhaldsáfangi og er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér enn betur undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur byggja upp orðaforða um sitt nánasta umhverfi og eru þjálfaðir í hlustun, ritun, lestri og tali. Markmiðið er að nemendur þjálfist í því að spyrja til vegar, geti bókað hótelbergi á þýsku og pantað sér mat og drykk á veitingastað. Að nemendur geti byggi upp orðaforða sem tengist því og noti til þess grunnatriðin í þýskri málfræði. Einnig læra nemendur að tjá sig um áhugasvið sín og æfa enn betur að tala um liðna atburði og framtíðaráform. Markmiðið er að geta bjargað sér á þýsku og tekið þátt í samræðum. Stuðst verður við fjölbreyttar kennsluaðferðir þar sem tekið er mið af markmiðum áfangans. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Nemendur hlusta á lög sungin á þýsku og gera verkefni tengd þeim. Einnig eru sýndar kvikmyndir og þættir á þýsku. Nemendur velja sér ákveðin umfjöllunarefni sem tengjast hinum þýskumælandi löndum og kynna fyrir samnemendum.
    ÞÝSK2CC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
    • menningu, samskiptavenjum og siðum hinna þýskumælandi þjóða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
    • fylgja fyrirmælum í kennslustofunni á þýsku
    • lesa erfiðari texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum sjálfum, umhverfi og dægurmálum
    • tala um liðna atburði og geti einnig talað um framtíðaráform
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir
    • segja frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni. áhugamálum sínum og atburðum dagslegs lífs í nútíð – og í núliðinni tíð / þátíð
    • tala og kynna fyrir samnemendum verkefni sem unnin eru á þýsku
    • skilja fréttir á þýsku og lesa auðvelda texta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig munnlega og skriflega um efni sem hann þekkir
    • skilja talað mál þegar talað er hægt og skýrt
    • skilja einfalda texta
    Þekking er metin með lokaprófi, skriflegum könnunum og verkefnum sem bæði eru unnin heima og í kennslustundum. • Leikni er metin með fjölbreyttum verkefnum og könnunum sem taka mið af færniþáttunum fjórum samkvæmt ETM. ( Tal, hlustun, lestur og ritun ) • Hæfnin er metin í verkefnavinnu samkvæmt markmiðum ETM. • Lokapróf metur hæfni nemanda til að skilja lesinn og ólesinn texta, grunnatriði í þýskri málfræði sem og ritunarfærni nemanda. Munnlegt próf metur hæfni nemanda til að tjá sig á þýsku og skilning á töluðu máli.