Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431422817.01

    Forritun II
    FORR2MY05(FB)
    6
    forritun
    Myndræn notendaviðmót
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    FB
    Farið er í undirstöðuatriði forritunar með myndrænum notendaskilum. Nemendur fá að kynnast mismunandi aðferðum við myndræna framsetningu á forritum. Haldið verður áfram að kenna grunnatriði forritunar, s.s. strengjavinnslu, slaufur, skilyrðissetningar og skráarvinnslu. Nemendur vinna verkefni þar sem þeir hanna og búa til skjámyndir og forrita virkni þeirra. Kennd eru öguð og viðurkennd vinnubrögð við greiningu og hönnun tölvuforrita. Námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám í forritun. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemanda og skilum á verkefnum.
    FORR1GR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu forrita með myndrænum notendaskilum
    • texta- og strengjavinnslu
    • skráarvinnslu
    • greiningu forrita með myndrænum notendaskilum
    • hönnun forrita með myndrænum notendaskilum
    • skilyrðissetningum
    • slaufum
    • villugreiningu forrita
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hanna myndræn notendaskil
    • forrita myndræn notendaskil
    • að vinna með flóknari skipanir í forritun
    • vinna með inntak og úttak í forritum með myndrænum notendaskilum
    • að finna villur í forritum og laga þær
    • að setja upp forrit á læsilegan hátt með góðum skýringartexta
    • nota öguð og vönduð vinnubrögð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hanna og skrifa forrit sem er með myndrænt notendaviðmót
    • lesa gögn úr skrám og nota í forriti
    • nota slaufur og skilyrðissetningar
    • vinna með texta og textastrengi
    • taka tilbúið forrit og skýra út virkni þess línu fyrir línu
    • villugreina og laga forrit
    Þekking er metin jafnt og þétt yfir tímabilið með verkefnum unnum í tímum og heima. Einnig með stuttum skyndiprófum. Leikni er metin út frá vinnubrögðum og framsetningu verkefna. Hæfnin er metin með verkefnavinnu yfir önnina. Í lok annar velur nemandinn sér sjálfur verkefni til þess að forrita. Í þessu verkefni á nemandinn að nota alla þá þætti sem hann hefur lært yfir önnina. Nemandinn hannar og skrifar fullbúið forrit. Hæfni nemandans er svo metin út frá hönnun, virkni, uppsetningu, læsileika og skýringartexta forritsins.