Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431445276.84

    Íþróttagrein - Blak
    ÍÞRG2BL02(FB)
    17
    íþróttagrein
    blak
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    FB
    Lýsing: Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði blaks. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu blaks. Efnisatriði: Knatttækni, tækniþjálfun, fingurslag, fleygur, „smass“, hávörn, uppgjafir, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur, liðkun. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg, þar sem megináhersla er lögð á æfingakennslu nemenda. Nemendur taki þetta jafnhliða ÍÞRF2ÞB05 eða hafi lokið þeim áfanga.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • allri grunntækni blaks
    • mismun á þjálfun barna, unglinga og fullorðinna í blaki
    • leikreglum í blaki
    • undirbúningi og skipulagi blakæfinga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að undirbúa, skipuleggja og halda blakæfingu fyrir börn að tólf ára aldri
    • dómgæslu í blaki
    • að kenna leikfræði blaks
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir blak
    • skipuleggja þjálfun í blaki
    • dæma leiki hjá yngstu iðkendum
    • rita leikskýrslu í blaki
    Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð.