Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431529044.55

    Geðsálfræði
    SÁLF3GS05
    44
    sálfræði
    geðsálfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Fjallað er um geðheilsu, geðræn vandamál, almennt geðheilbrigði og geðrækt. Lögð er áhersla á að nemendur átti sig á samspili líkamlegra og andlegra þátta í tengslum við geðheilbrigði og þróun geðraskana. Nemendur kynnast leiðum til að verjast streitu og taka á afleiðingum hennar. Einnig er fjallað um geðraskanir, flokkunarkerfi geðraskana og helstu meðferðarúrræði við geðröskunum. Nemendur afla sér upplýsinga um úrræði og þá meðferð sem er í boði á Íslandi. Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist skilning á geðheilsu, geðrækt og eðli geðraskana svo þeir skilji hvernig þeir geta tekið ábyrgð á eigin geðheilbrigði.
    (SÁL1A05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • geðheilsu og geðröskunum.
    • mismunandi nálgun sálfræðinnar á geðheilsu.
    • helstu hugtökum og kenningum geðsálfræðinnar.
    • helstu meðferðarformum og úrræðum við geðröskunum.
    • hvernig viðhorf til geðraskana og meðferð þeirra hefur breyst í tímanna rás.
    • aðbúnaði og möguleikum einstaklinga með geðraskanir í samfélaginu.
    • lagalegum og siðferðilegum þáttum sem lúta að meðferð persónuupplýsinga.
    • framlagi geðsálfræðinnar innan sálfræðinnar og til samfélagsins.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina helstu streituþætti sem koma upp í daglegu lífi.
    • nýta aðferðir við að minnka eða fyrirbyggja streitu í sínu daglega lífi.
    • miðla þekkingu sinni á eðli geðraskana.
    • setja sig í spor fólks sem á við geðræn vandamál að stríða.
    • beita sálfræðilegum meðferðarúrræðum á einkenni geðraskana.
    • afla sér heimilda og upplýsinga á sviði geðsálfræði, greina þær og setja í fræðilegt samhengi.
    • nýta fræðilegan texta um geðraskanir á íslensku og erlendum tungumálum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina alvarleika ólíkra geðraskana með tilliti til áhrifa á daglegt líf sem metið er með hópvinnu og rannsóknum.
    • greina áhrif umhverfis og erfða á þróun geðraskana sem metið er með umræðum og persónulegri ígrundun.
    • móta eigið geðheilbrigði til að verða hæfari þátttakandi í nútímasamfélagi sem metið er með persónulegum verkefnum eða dagbókarskrifum.
    • afla upplýsinga í geðsálfræði til að nota við úrlausn verkefna sem metið er með ritgerðum og skýrslum.
    • framkvæma flókna eigindlega rannsókn og gera grein fyrir helstu niðurstöðum sem metið er með skýrslu og kynningu.
    • meta á gagnrýninn og uppbyggilegan hátt eigið vinnuframlag og annarra í verkefnavinnu sem er metið með sjálfsmati og jafningjamati.
    Leitarnám, rannsóknir, samvinnunám, umræður, fyrirlestrar kennara og nemenda. Verkefnavinna, sjálfsmat, símat og jafningjamat. Ástundun, frumkvæði og þátttaka.