Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1431705247.24

    Teikning, myndgreining og myndbygging
    MYNL3TB05(FB)
    13
    myndlist
    Teikning, myndbygging, myndgreining
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    FB
    Marmið áfangans gengur út á að efla þrjá meginþætti: Teikningu sem tjáningarmiðil, með notkun mismunandi teikniefna og verkfæra. Myndgreiningu þar sem nemendur læra að formgreina listaverk og dýpka þannig skilning sinn á sjónrænum forsendum myndverka. Myndbyggingu þar sem nemendur læra að byggja upp eigin verk í form og lit. Mikil áhersla verður lögð á skissuvinnu og leit að myndefni.
    Undanfari: SJÓN1EU05, SJÓN1LS05, MYNL1HU05, MYNL2MT05, LJÓS1SL05, MYNL2ÞV05, MYNL2FF03, LJÓS2FI05, MYNL3BM05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum teikniaðferðum
    • ólíkum efnum til myndgerðar
    • ferilvinnu frá skissu til verks
    • formrænum reglum myndbyggingar
    • hugtökum til rökstuðnings á vali fyrirmynda og sjónarhorna
    • hugtökum til að setja verk sín og annarra í listsögulegt samhengi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota mismunandi áhöld í teikningu
    • ná góðu valdi á frásagnarmáta teikningar
    • ná góðu valdi á listrænni tjáningu í teikningu
    • nýta sér reglur um formræna myndbyggingu
    • nota liti
    • rökræða um listaverk
    • nýta sér ljósmyndun við leit að viðfangefnum
    • ræða og kynna verk sín og annarra
    • nota stafræna tækni við efnisöflun og útfærslu hugmynda
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta beitt mismunandi teikniaðferðum eftir því hvert viðfangsefnið er
    • sýna fram á að hann skilji lögmál formrænnar uppbyggingar myndverka
    • meta tengsl inntaks og formrænnar framsetningar listaverka
    • rökstyðja myndbyggingu eigin myndverka
    • beita gagnrýninni hugsun við túlkun og úrvinnslu listaverka
    • vera fær um að byggja upp markvisst þróunarferli frá hugmynd að mynd
    • taka þátt í gagnrýninni umræðu um eigin verk og annarra
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni sem unnin eru jafnt og þétt yfir önnina. Vinnubrögð, virkni og listrænt gildi eru lögð til grundvallar námsmati. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg próf. Þekking er metin út frá umræðum, skriflegum verkefnum og aðferðum við útfærslu verkefna. Leikni er metin út frá færni í útfærslu verkefna. Hæfni er metin út frá sjálfstæði og þróun hugmynda.