Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432043388.97

    Lífræn efnafræði
    EFNA3LR05
    35
    efnafræði
    lífræn efnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    SB
    Í áfanganum fá nemendur yfirlit yfir helstu efnisþætti lífrænnar efnafræði og lífefnafræði. Sérkenni lífrænna efna eru skoðuð, fjallað er um helstu flokka lífrænna efna, nafnakerfi og helstu efnahvörf. Þrír meginflokkar lífefna er til umfjöllunar, þ.e. sykrur, fitur og prótein. Áfanginn byggir að hluta á verklegum æfingum og verkefnum sem nemendur vinna undir leiðsögn kennara
    Nemendur þurfa að hafa lokið 5 f-einingum á 2. þrepi í efnafræði
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sp3-, sp2- og sp-svigrúmablöndun kolefnis
    • einkennum helstu flokka lífrænna efna
    • nafnakerfi lífrænna efna (IUPAC)
    • helstu efnahvörfum lífrænna efna
    • hugtakinu hendið (ósamhverft) kolefni
    • byggingu og helstu eiginleikum sykra, lípíða og amínósýra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gefa lífrænum efnum nöfn út frá byggingarformúlum
    • teikna byggingarformúlur lífrænna efna út frá gefnum nöfnum
    • teikna mismunandi rúmísómerur lífrænna efna
    • framkvæma verklegar æfingar í lífrænni efnafræði með leiðsögn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa úr og túlka niðurstöður verklegra æfinga og yfirfæra á bókleg atriði í lífrænni efnafræði
    • yfirfæra bóklega þekkingu í lífrænni efnafræði á hluti í daglegu lífi
    Námsmat áfangans verður fjölbreytt og mun taka mið af þekkingu, leikni og hæfni nemenda. Matið gæti t.d. samanstaðið af prófum, mati á verkefnum, t.d. ritgerð, skýrslum og fyrirlestrum nemenda, jafningjamati í hópavinnu, dagbókarskrifum nemenda, mati á virkni og þátttöku í umræðum