Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432122175.24

    Heimspeki
    HEIM2HU05
    20
    heimspeki
    Heimspeki og hugmyndir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    FB
    Í áfanganum er heimspekin (ást á visku) kynnt sem fræðigrein og einnig sem lífsmáti. Nemendur kynnast og spreyta sig á klassískum hugtökum og spurningum heimspekinnar svo sem: Hvað er sannleikur; gott líf; réttlæti; fegurð; sál; rök; og dygð? Gagnrýnin og skapandi hugsun er hluti af lifandi heimspekinámi, þar sem réttlætiskennd og sannleiksleit nemenda er leiðarljós í ýmsum samræðuverkefnum sem styrkja virðingu og umburðarlyndi gagnvart hugsunum og skoðunum þátttakenda. Í áfanganum eru verkefni tengd undirgreinum heimspekinnar s.s rökfræði og siðfræði, heimspekileg greining á kvikmynd og nemendur hvattir til að móta sína eigin heimspekilegu sýn á það hvað þeir álíta gott og farsælt líf.
    FÉLV1SF06
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • völdum klassískum hugmyndum heimspekinga frá tímum Forn-Grikkja og fram á okkar dag
    • mikilvægi gagnrýninnar og skapandi hugsunar
    • gildi opinnar samræðu þar sem virðing er borin fyrir rökum og skoðunum annarra
    • gildi raka og algengustu rökvillum
    • hlutverki siðfræði og heimspekilegra hugmynda um siðferði í sögu mannsins
    • lestri texta af heimspekilegum toga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og endursegja texta af heimspekilegum toga
    • beita gagnrýninni og skapandi hugsun
    • taka þátt í heimspekilegri orðræðu og hlusta á aðra
    • tengja heimspekilegar hugmyndir við eigin líf og reynslu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta miðlað ólíkum hugmyndum og fróðleik á skýran hátt
    • geta beitt gagnrýnni hugsun á margbreytilegum sviðum lífsins
    • geta metið af yfirvegun ólíkar skoðanir og rök og tekið rökstudda afstöðu til ýmissa álitamála
    • öðlast betri þekkingu og skilning á sjáfum sér, umhverfinu sínu og veruleika
    Símat. Þekking er metin með prófum og verkefnum sem bæði eru unnin í tímum og heima. Leikni er metin á grunni skilningis og greiningar á rökum lesins texta og beitingu röklegrar og skapandi hugsunar í eigin texta Hæfni er metin á grunni þátttöku og árangurs í samræðum, rökræðum og skoðanaskiptum við jafningja og kennara, með tilliti til þess hvernig nemendum gengur að miðla efni til jafningja sinna og hæfileikanum til að hlusta á rödd annarra.