Í áfanganum læra nemendur að nýta sér tölvur við útreikninga, verkáætlanir og notkun eyðublaða við gæðastjórnun. Kennd eru grunnatriði töflureiknis og verkáætlanaforrits til að hafa yfirsýn yfir kostnaðarþætti verkefna, verkefnastýringu, gerð tímaáætlana, endurskoðun áætlana m.m. Kennd er notkun helstu eyðublaða og farið í stjórnunar- og verkferla gæðatryggingar við verklegar framkvæmdir. Farið er í gagnainnslátt í töflureiknum, breytingar á skjölum, forsnið, röðun gagna, útlitshönnun og kenndar ýmsar grunnaðgerðir eins og summa og meðaltöl, formúlugerð, beinar og afstæðar tilvísanir og tenging milli skjala. Fjallað er um áætlanagerð eins og sundurliðun verkefna, og Gantt-rit í nýjustu forritum. Áfanginn er sniðinn að þörfum bygginga- og mannvirkjagreina og fer kennslan að mestu fram með raunhæfum verkefnum þar sem m.a. er unnið með verðskrár einstakra iðngreina. Nemandi öðlist hæfni til þess að nota byggingarreglugerð og kunni skil á skipulagslögum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
byggingarreglugerð og skipulagslögum
verk og tímaáætlunum
verkefnastýringu/gæðastjórnun
byggingaferli
verðskrám iðngreina og kostnaðaráætlunum
gerð kostnaðaráætlana og notkun töflureiknis við útreikninga
uppbyggingu og gerð kostnaðaráætlana
uppbyggingu töflureikna og hagnýtingu þeirra
áætlanagerð og verkáætlanaforritum
algengustu aðferðum við áætlanagerð eins og Gantt og CPM
grundvallarþáttum verkáætlunar vegna skýrslugerðar
helstu reglum sem fylgt er þegar unnin er verkáætlun í tölvu
grunnþáttum og hönnun kassarita og örvarita
tölvuforritum sem notuð eru til að gera verkáætlanir og hagnýtingu þeirra
helstu stjórnunar- og verkferlum gæðatryggingar við verklegar framkvæmdir
skipuritum og starfslýsingum
meðhöndlun og vistun nýrra teikninga og verklýsinga
móttöku efna á vinnusvæði
dagbókarhaldi og úttektum
meðhöndlun frábrigða/galla
meðhöndlun breytinga á verkþáttum
meðhöndlun aukaverka
innra eftirliti með einstökum verkþáttum
verkefnis- og verkþáttarýni
hefðbundnu byggingaferli frá hugmynd til lokaúttektar
lögum og reglugerðum um skipulags- og byggingarmál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
magntaka og kostnaðarreikna einfalda þætti verklegra framkvæmda
gera verk og tímaáætlanir
fylgja eftir gæðastjórnun á verkferlum
vinna eftir bygginga- og skipulagslögum
nota töflureikni við útreikninga
nota verkáætlanaforrit við gerð tímaáætlana
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
magntaka og kostnaðarreikna einfalda verkþætti á sjálfstæðan hátt
beita tíma- og hráefnisskráningu
vinna með tölvuforrit sem notuð eru til að gera verkáætlanir
beita og fylgja eftir innra eftirliti með einstökum verkþáttum
fara að lögum og reglugerðum um skipulags- og byggingarmál
Mælt er með því að námsmat byggi á verkefnum (50%) og lokaprófi (50%) sem tekið er á tölvu.
Æskilegt er að nemendur taki þennan áfanga á lokaönn námsins.