Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1432580284.49

    Teikningar og verklýsingar í húsasmíði V
    TEIK3HU05(FB)
    1
    teikning
    Teikningar og verklýsingar í húsasmíði V
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    FB
    Nemendur fá áframhaldandi þjálfun í lestri og gerð byggingateikninga en nú með áherslu á timburhús og þakvirki. Haldið er áfram umfjöllun um almenna byggingauppdrætti en samhliða koma einnig burðarvirkisuppdrættir þar sem m.a. er komið inn á ýmiss konar álag á byggingar og brunahönnun. Fjallað er um algengustu útfærslur burðarvirkja úr tré, byggingatæknilegar lausnir, hönnunarforsendur, verklýsingar með tilliti til m.a. efniskrafna og einangrunar. Nemendur kynnast mátkerfi fyrir byggingariðnaðinn og fá þjálfun í gerð efnislista og kostnaðarútreikninga á grundvelli hönnunargagna. Áfanginn er ætlaður húsasmiðum og byggist á verkefnavinnu með leiðsögn kennara.
    TEIK2 Teikningar og verklýsingar 2 í húsasmíði
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ákvæðum reglugerðar um undirstöður þakvirkis
    • ýmsum útfærslum burðavirkja úr tré
    • stöðluðum málum (stærðum) ýmissa byggingarhluta
    • trévirki timburhúsa og útfærslum einstakra byggingarhluta
    • húsa með áherslu á timbur
    • helstu ákvæðum reglugerðar um brunavarnir og einangrun bygginga
    • íslenskum stöðlum um timbur og festingar í burðarvirki húsa
    • helstu fagheitum á byggingar- og burðarvirkisuppdráttum
    • mátkerfi fyrir byggingariðnaðinn og hagnýtingu þess
    • gerðum uppdrátta og teikninga og öllum almennum teiknitáknum
    • teikniaðferðum og teiknireglum fyrir trévirki og timburhús
    • notkun algengustu teikniforrita í tölvu við gerð og miðlun hönnunaruppdrátta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa teikningar og verklýsingar
    • nota tölvuteiknaða uppdrætti og önnur hönnunargögn
    • gera kostnaðarútreikninga og verklýsingar
    • vinna eftir reglugerðum
    • vinna eftir teikningum og verklýsingum
    • teikna vinnuteikningar
    • vinna og hugsa sjálfstætt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styðjast við Rb-blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga
    • lesa og vinna með teikningar af timburhúsum og trévirkjum
    • lesa og skilja merkingar og verklýsingar á teikningum
    • gera efnislista og einfalda
    • kostnaðarútreikninga á grundvelli teikninga
    • öðlast innsýn í tæknilegar útfærslur vegna álags og einangrunar
    • teikna algengustu deililausnir trévirkja og lítið timburhús
    • gera rissmyndir af deililausnum einstakra byggingarhluta úr tré
    • gera uppdrætti af litlu timburhúsi og deiliteikningar trévirkja
    Mælt er með því að námsmat byggi á verkefnavinnu og skyndiprófum u.þ.b. 40% og lokaprófi 60%.