Þessi áfangi miðast við A1 í sjálfsmatsramma Evrópsku tungumálamöppunnar.
Í þessum áfanga er byrjað frá grunni. Farið er yfir orðflokka (nafnorð, sagnorð og lýsingarorð) og lesnir eru léttir textar til þess markvisst að auðga orðaforða nemandans. Einnig eru nemendur markvisst þjálfaðir í hlustun, tjáningu og ritun. Lögð er áhersla á að textaval endurspegli kröfur námsskrár um grunnþætti menntunar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
grundvallarþáttum málkerfisins
menningu og siðum Dana
einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja algeng orð og einfaldar setningar sem fjalla um hann sjálfan eða fjölskyldu hans
lesa kunnugleg orð og mjög einfaldar setningar
taka þátt í einföldum samræðum ef hinn aðilinn er tilbúinn til að tala hægt og endurtaka
skilja og svara einföldum spurningum um kunnugleg málefni
segja á einfaldan hátt frá búsetu sinni og fólki sem hann þekkir ef nemandinn hefur fengið tækifæri til að undirbúa sig
skrifa stuttar setningar og mynda stuttan texta t.d. á póstkort eða á eyðublöð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
auka meðvitund um eigin leiðir til að tileinka sér tungumálið
rita dönsku á einföldu máli
geta átt einföld samskipti á dönsku um málefni sem varða hann sjálfan
segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni
• Þekking er metin með lokaprófi og skriflegum verkefnum
• Leikni og hæfni er metin með fjölbreyttum verkefnum sem sett eru í Portfolio-möppu. Leiðsagnarmat er gefið fyrir Portfolio-möppuna og nemendur hvattir til að betrumbæta vinnu sína. Lögð er áhersla á að nemendur sýni góð vinnubrögð og vandaðan frágang
• Lokapróf metur hæfni nemandans til að skilja lesinn og ólesinn texta, grunnatriði í málfræði sem og ritunarfærni nemandans